Stefna Fjártækni & Bókhalds ehf. um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka


Tilgangur og markmið

Fjártækni & bókhald ehf. (hér eftir „F&B“ eða „félagið“) leggur áherslu á að hlíta öllum
kröfum laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka auk annarra laga
og reglugerða sem settar eru á sama grundvelli. Tilgangur stefnu þessarar er að koma á og
viðhalda skilvirku kerfi til að sporna við að þjónusta og vörur F&B verði notaðar í ólöglegum
tilgangi er tengist peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Markmið stefnunnar er að lýsa
ábyrgð, hlutverki og helstu verkefnum ábyrgðaraðila.

Með peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka er vísað til þess þegar einstaklingur eða
lögaðili tekur við, nýtir eða aflar sér með einhverjum hætti ávinnings sem verður til vegna
brots sem er refsivert samkvæmt almennum hegningarlögum eða öðrum lögum. Á grundvelli
framangreindra laga hefur félagið þeirri skyldu að gegna að þekkja deili á viðskiptamönnum
sínum og starfsemi þeirra og tilkynna um það til þar til bærra yfirvalda vakni grunur um
ólögmæta starfsemi.

Ábyrgðaraðilar og helstu verkefni
Stefnan nær til stjórnar, stjórnenda og starfsmanna F&B og er þeim skylt að starfa og halda
utan um alla þætti er snúa að aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka í
samræmi við skilgreint verklag og ferla vegna afhendingar á þjónustu og vörum félagsins.
Stjórn ber ábyrgð á að til staðar sé virkt kerfi innra eftirlits sem tekur á þeim eftirlitsþáttum
sem beinast að aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Forstjóri/framkvæmdastjóri ber ábyrgð á að stefnu þessari sé framfylgt og skal með
reglulegum hætti kanna hvort henni sé framfylgt innan félagsins og hvort unnið sé í samræmi
við skilgreint verklag vegna aðgerða gegn peningaþvætti. Forstjóri skal sjá til þess að gert sé
áhættumat og að framkvæmdar séu áreiðanleikakannanir á viðskiptavinum félagsins.
Forstjóri skipar ábyrgðarmann aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og
skal jafnframt sjá til þess að starfsmenn hljóti sérstaka þjálfun í aðgerðum gegn
peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Ábyrgðarmaður aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka skal taka út virkni
eftirlitsþátta sem draga úr þeirri áhættu að þjónusta og vörur félaganna séu nýttar í
tengslum við peningaþvætti eða fjármögnun hryðjuverka. Hann skal að lágmarki einu sinni á
hverju rekstrarári, taka saman upplýsingar um tilkynningar til lögreglu og önnur tilvik mála
sem upp koma innan samstæðunnar, og gefa skýrslu til stjórnar félagsins. Hann skal einnig
upplýsa um hvernig staðið var að þjálfun og menntun starfsmanna. Hann annast tilkynningar
um grunsamleg viðskipti og fjármuni sem grunur leikur á að rekja megi til refsiverðrar
háttsemi í samstarfi við stjórnendur F&B.

Starfsmönnum ber að starfa samkvæmt þeim ferlum og verklagi sem félagið hefur innleitt.
Starfsmenn þurfa að þekkja tilgang og eðli þeirra eftirlitsaðgerða sem þeir framkvæma. Þeir
þurfa að vera vakandi fyrir viðeigandi aðgerðum gegn peningaþvætti og hryðjuverkum, sýna
árvekni gegn hugsanlegum svikum og upplýsa yfirmann sinn ef þeir telja að þjónusta eða
vörur F&B séu notaðar í peningaþvætti eða til fjármögnunar hryðjuverka. Einnig ber þeim að
upplýsa stjórnendur ef þeir telja að eftirlitsaðgerðum til mildunar áhættu sé áfátt eða ef
eftirlit sé ófullnægjandi og ekki í samræmi við þau markmið sem félagið hefur sett sér.

Aðferðir og skýrslugerð
Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka skulu m.a. felast í gerð
áhættumats. Matið skal innihalda skriflega greiningu og mat á hættu á peningaþvætti og
fjármögnun hryðjuverka og skal m.a. taka mið af áhættuþáttum sem tengjast
viðskiptamönnum, viðskiptalöndum eða svæðum, vörum, þjónustu, viðskiptum, tækni og
dreifileiðum. Áhættumat skal einnig taka mið af stærð, eðli og umfangi á starfsemi og
margbreytileika starfseminnar. Áhættumatinu er ætlað að leiða í ljós helstu áhættuþætti er
tengjast peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Áhættumatið er grundvallarþáttur í áhættumiðuðu eftirliti og leggur grunninn að viðeigandi
eftirlitsþáttum sem skulu vera innbyggðir í ferla og verklag.

Endurskoðun
Endurskoða skal stefnu þessa árlega eða oftar ef tilefni er til.

Þannig samþykkt af stjórn F&B þann 01.07.2021.