UM OKKUR
Fjártækni & bókhald ehf. er ört vaxandi fyrirtæki með áralanga reynslu fagaðila af rekstrarráðgjöf og bókhaldsþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Við þjónustum fyrirtæki í öllum atvinnugreinum með margskonar ráðgjöf í rekstri fyrirtækja og þjónustu eins og fjármálastjóra til leigu, til skemmri eða lengri tíma. Einnig bjóðum við upp á alhliða bókhaldsþjónustu, launavinnslur, afstemmingar, uppgjör, rekstrarskýrslu- og ársreikningagerð. Við aðstoðum fyrirtæki við að sjálfvirknivæða, besta innri verkferla og þjálfa starfsfólk. Fjártækni & bókhald ehf. er þjónustu- og endursöluaðili Uniconta upplýsingatæknikerfis á Íslandi.
Fjártækni & bókhald ehf. er í eigu Jóhönnu Maríu Einarsdóttur en hún hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu. Hefur m.a. unnið hjá Ríkisskattstjóra, í banka og í ýmsum atvinnugreinum, sem greinandi, uppgjörsaðili, við ýmis sérverkefni, sem fjármálastjóri og innri endurskoðandi. Nánari upplýsingar um starfsferil má finna hér.
Fjártækni & bókhald er staðsett í Grósku hjá Fjártækniklasanum í Vatnsmýrinni í miðju samfélags um framfarir í fjártækni á Íslandi.
Hægt er að hafa samband við okkur með því að senda tölvupóst á bokhald@fjartaekni.com, í gegnum síma 419-6800 eða með því að senda okkur skilaboð hér í gegnum heimasíðuna.
Meira sjálfvirkt, minna handvirkt









