Persónuverndarstefna Fjártækni & Bókhald ehf.


Almennt

Fjártækni & bókhald ehf., kt. 490107-0530 er annt um friðhelgi einstaklinga og tekur
persónuvernd alvarlega. Fyrirtækið leggur áherslu á að meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í
samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf. Í þessari tilkynningu má sjá hvaða
persónuupplýsingum fyrirtækið safnar um einstaklinga vegna starfsemi sinnar og í hvaða tilgangi.
Þá má hér finna upplýsingar um aðra viðtakendur upplýsinganna og hversu lengi þær eru
geymdar.
Auk þess má hér finna upplýsingar um á hvaða grundvelli við söfnum persónuupplýsingum,
hvaða réttinda einstaklingar njóta og fleiri mikilvægar upplýsingar sem tengjast lögum um
persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 (hér eftir Persónuverndarlög).
Yfirlýsingin fjallar einkum um vinnslu persónuupplýsinga þegar:

  •      við veitum viðskiptavinum okkar þjónustu
  •      þegar einstaklingar nota heimasíðu okkar, www.fjartaekni.com
  •      þegar einstaklingar hafa samband við okkur, hvort sem það er í gegnum tölvupóst eða síma  eða samfélagsmiðla

Hvað eru persónuupplýsingar og vinnsla persónuupplýsinga?
Með persónuupplýsingum er átt við allar upplýsingar sem hægt er að rekja til
tiltekins einstaklings, svo sem upplýsingar um nafn, kennitölu, heimilisfang, netfang,
símanúmer, fjárhag, heilsufar, IP tölu og fleira. Í 2. og 3. tl. 1. mgr. 3. gr. persónuverndarlaga er
að finna nánari skilgreiningu á persónuupplýsingum.
Með viðkvæmum persónuupplýsingum er átt við persónuupplýsingar sem njóta
sérstakrar verndar samkvæmt persónuverndarlögum s.s. upplýsingar um þjóðernisuppruna eða
kynþátt, stjórnmála- og trúarskoðanir, stéttarfélagsaðild, erfðagögn, heilsu, kynlíf eða kynhneigð.
Með vinnslu persónuupplýsinga er átt við alla meðferð og notkun persónuupplýsinga svo
sem söfnun, skráningu, varðveislu, breytingu eða eyðingu. Í 4. tl. 1. mgr. 3. gr.
persónuverndarlaga er að finna nánari skilgreiningu á vinnslu persónuupplýsinga.

Hvernig vinnur Fjártækni & bókhald persónuupplýsingar?
Hjá okkur fer vinnsla persónuupplýsinga fram á lögmætum grundvelli og í samræmi við lög um
persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Fyrirtækið gætir jafnframt að því að
persónuupplýsingar séu ekki unnar frekar á þann hátt að vinnslan sé ósamrýmanleg
upprunalegum tilgangi vinnslunnar.
Fyrirtækið gætir að því að farið sé að eftirfarandi meginreglum:

  1. Að persónuupplýsingar séu unnar með sanngjörnum hætti.
  2. Að persónuupplýsingum sé einungis safnað í skýrum tilgangi.
  3. Að ekki sé safnað meiri persónuupplýsingum en nauðsynlegt er.
  4. Að persónuupplýsingar séu nákvæmar og uppfærðar þegar þörf krefur.
  5. Að persónuupplýsingar séu ekki geymdar lengur en þörf er á.
  6. Að gætt sé að öryggi persónuupplýsinga með viðeigandi varúðarráðstöfunum.

 

Sjálfvirk ákvarðanataka
Sjálfvirk ákvarðanataka er það ferli þegar tekin er ákvörðun með sjálfvirkum hætti án nokkurrar
mannlegrar aðkomu. Slíkar ákvarðanir geta verið byggðar á persónusniðum, þ.e. þegar
persónuupplýsingar eru notaðar til að meta ákveðna þætti er varða hagi einstaklings, einkum að
greina eða spá fyrir um þætti er varða frammistöðu hans í starfi, fjárhagsstöðu, heilsu, o.fl. Dæmi
um sjálfvirka ákvarðanatöku væri ef ákvörðun um lánveitingu í gegnum vefsíðu byggði eingöngu á lánshæfismati.
Ekki fer fram sjálfvirk ákvarðanataka við vinnslu persónuupplýsinga hjá okkur.

Um hverja safnar Fjátækni & Bókhald persónuupplýsingum?
Í starfsemi okkar er nauðsynlegt að safna og vinna með persónuupplýsingar um mismunandi
hópa einstaklinga.
Þær persónuupplýsingar sem fyrirtækið hefur undir höndum geta verið um starfsmenn þess,
viðsemjendur, viðskiptavini og aðra þriðju aðila sem nauðsynlegt er að eiga samskipti við.

Hvaða persónuupplýsingum safnar Fjártækni & bókhald ehf?
Fjártækni & Bókhald leggur áherslu á að vinna einungis þær persónuupplýsingar sem
nauðsynlegar  eru í samræmi við þann tilgang sem liggur að baki söfnun upplýsinganna.
Fjártækni & Bókhald vinnur, eins og við á hverju sinni, einkum eftirfarandi persónuupplýsingar:

  • auðkennis- og samskiptaupplýsingar, s.s. nafni, kyni, kennitölu, heimilisfangi, tölvupósti, símanúmeri
  • Fjölskylduhagir, t.d. hjúskaparstaða og einstaklingar á framfæri þínu
  • Upplýsingar í tengslum við starf þitt eða menntun, t.d. hjá hvaða fyrirtæki þú vinnur og starfstitill
  • Rafræn skilríki
  • Skattalegar upplýsingar, t.d. tekjur og skattaleg heimilisfesti
  • tæknilegar upplýsingar, s.s. IP tölu
  • Samskipti þegar einstaklingar hafa samband við okkur

Fjártækni & Bókhald vinnur að jafnaði ekki persónuupplýsingar sem flokkast sem viðkvæmar
persónuupplýsingar samkvæmt persónuverndarlögum né upplýsingar um sakfellingar í
refsimálum eða  refsiverða háttsemi nema í þeim tilvikum sem fyrirtækinu væri skylt að vinna
slíkar upplýsingar, t.d.  varðandi kröfur um „know your client“ eða samkvæmt lögum um
aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018 (hér eftir
Peningaþvættislög). Jafnframt gæti Fjártækni & Bókhald í vissum tilvikum þurft að vinna
viðkvæmar persónuupplýsingar til að höfða

Viðskiptamannaskrá
Fjártækni &bókhald ehf. heldur skrá utan um núverandi viðskiptavini og safnar
grunnupplýsingum (nafn, kennitala, netfang, símanúmer, bankaupplýsingar, upplýsingar um
lífeyrissjóðs aðild, stéttarfélagsaðild, upplýsingar um ógreidd gjöld, veflykil RSK o.fl.) þeirra
viðskiptavina sem eru einstaklingar og upplýsingum um tengiliði þeirra viðskiptavina sem eru
lögaðilar.
Til að aðstoða viðkomandi viðskiptavin við bókhaldsgerð þarf Fjártækni & Bókhald að fá
skoðunaraðgang að netbanka viðskiptavinar með rafrænum skilríkjum og safna upplýsingum um
greiðslur viðkomandi fyrirtækis, laun o.fl.

Tölvupóstssamskipti
Við notum m.a. tölvupóst til að eiga í samskiptum við viðskiptavini og tengiliði viðskiptavina og
söfnum í þeim tilgangi tengiliðaupplýsingum ásamt samskiptunum sjálfum.

Reikningagerð
Í þeim tilgangi að senda út reikninga og innheimta, söfnum við grunnupplýsingum um
viðskiptavini ásamt reikningsupphæð.

Tilgangur með söfnun persónuupplýsinga
Tilgangurinn með söfnun upplýsinganna er að:

  • Geta efnt samningsskyldu, til dæmis við starfsmenn og viðskiptavini.
  • Geta veitt ákveðna þjónustu, til dæmis við viðskiptavini.
  • Gæta að lögmætum hagsmunum fyrirtækisins, til dæmis með eftirlitsmyndavélum í
    öryggis- og eignavörsluskyni.
  • Sinna fyrirspurnum og erindum frá eftirlitsaðilum og öðrum opinberum aðilum.
  • Uppfylla lagaskyldu s.s lög umaðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
    nr. 140/2018.
  • Sinna samskiptum við tengiliði fyrirækja.

Lagagrundvöllur fyrir vinnslu persónuupplýsinga
Fjártækni & bókhald safnar og vinnur persónuupplýsingar á eftirfarandi lagagrundvelli:

  • Til að uppfylla lagaskyldu, þessi heimild á einkum við;       
         – skyldu okkar til að framkvæma áreiðanleikakönnun á viðskiptavinum okkar ísamræmi  við AML
         – lög.gögn sem falla undir bókhaldslög nr. 145/1994.
  • Til að uppfylla samningsskyldu.
  • Á grundvelli samþykkis einstaklinga.
  • Til að gæta að lögmætum hagsmunum fyrirtækisins.

Hve lengi geymir Fjártækni & bókhald ehf persónuupplýsingar?
Fyrirtækið geymir persónuupplýsingar einungis í þann tíma sem nauðsynlegt er fyrir fyrirtækið að
hafa þær undir höndum. Þegar ekki er þörf fyrir að hafa persónuupplýsingar undir höndum
lengur eyðir fyrirtækið þeim með öruggum hætti.

Frá hverjum safnar Fjártækni & bókhald ehf persónuupplýsingum?
Fyrirtækið safnar að meginstefnu til persónuupplýsingum beint frá þeim einstaklingum sem um
ræðir en styðst einnig við opinberar skrár í vinnslu sinni. Þegar og ef upplýsingum er safnað frá
öðrum þriðju aðilum reynir fyrirtækið eftir fremsta megni að upplýsa viðkomandi um það.

Hvenær miðlar Fjártækni & bókhald ehf persónuupplýsingum til þriðju aðila og af hverju?
Fyrirtækið miðlar persónuupplýsingum til þriðju aðila sem ráðnir eru af fyrirtækinu til að vinna
fyrir fram ákveðna vinnu, svo sem þjónustuveitenda, umboðsmanna eða verktaka.

Í þeim tilfellum gerir fyrirtækið vinnslusamning við viðkomandi aðila.
Slíkur samningur kveður meðal annars á um skyldu þriðja aðila til að fylgja fyrirmælum
fyrirtækisins um meðferð persónuupplýsinga og er honum óheimilt að nota þær í öðrum tilgangi.
Jafnframt ber honum skylda til að tryggja öryggi upplýsinganna með viðeigandi hætti.
Við miðlum einnig upplýsingum til þriðju aðila þegar skylda stendur til þess samkvæmt lögum.

Flutningur persónuupplýsinga út fyrir Evrópska efnahagssvæðið
Fyrirtækinu er kunnugt um að ströng skilyrði gilda um flutning persónuupplýsinga til ríkja sem
staðsett eru utan Evrópska efnahagssvæðisins. Fyrirtækið gerir það ekki undir neinum
kringumstæðum nema fullnægjandi heimild standi til þess samkvæmt lögum um persónuvernd
og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

Öryggi upplýsinganna
Fjártækni & bókhald leitast við að grípa til viðeigandi tæknilegra og skipulegra öryggisráðstafana
til að tryggja öryggi persónuupplýsinga í samræmi við lög um
persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Felur það meðal annars í sér að aðeins
þeir starfsmenn hafa aðgang að persónuupplýsingum sem þess þurfa starfs síns vegna.
Auk þess stuðlar fyrirtækið að aukinni vitundarvakningu hjá starfsmönnum með reglulegri þjálfun
og fræðslu um hvernig gæta skal að öryggi persónuupplýsinga.

Réttindi einstaklinga
Hafi einstaklingar veitt samþykki fyrir vinnslu tiltekinna persónuupplýsinga eiga þeir rétt
samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 að afturkalla
samþykki sitt hvenær sem er. Sá réttur hefur þó ekki áhrif á lögmæti þeirrar vinnslu sem fram fór
áður en samþykki var afturkallað.
Þá njóta þeir einnig annarra réttinda, svo sem réttar til að vera upplýstir um vinnslu, réttar til
aðgangs að gögnum, réttar til að fá rangar eða villandi
upplýsingar leiðréttar, réttar til að persónuupplýsingum verði eytt, réttar til að hindra að unnið
verði með persónuupplýsingar um þá og réttar til að flytja eigin upplýsingar.
Hafa skal í huga að réttindi einstaklinga eru ekki alltaf fortakslaus og kunna að vera háð ýmsum
skilyrðum.

Frekari upplýsingar
Ef þú vilt fá rekari upplýsingar um málefni sem snúað að þínum persónuuplýsingum þá bendum
við þér á að hafa samband við okkur:

  • Fjártækni & bókhald ehf.
  • Kennitala: 490107-0530
  • Heimilisfang: Grósku, Bjargargata 1, 102 Reykjavík.
  • Netfang: jme@fjartaekni.com
  • Sími 695-0940

Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd
Dragi einstaklingar í efa að Fjártækni & bókhald meðhöndli persónuupplýsingar þeirra í samræmi
við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 hafa þeir rétt til að senda
erindi til Persónuverndar (www.personuvernd.is).

Endurskoðun á þessari persónuverndaryfirlýsingu
Persónuverndaryfirlýsing þessi getur frá einum tíma til annars tekið breytingum í samræmi við
breytingar á viðeigandi lögum og reglugerðum eða ef breytingar verða gerðar á því hvernig
fyrirtækið vinnur með persónuupplýsingar. Verði breytingar gerðar á persónuverndaryfirlýsingu
þessari verður tilkynnt um slíkt á heimasíðu fyrirtækisins www.fjartaekni.com
Eftir að breytingar hafa verið gerðar á persónuverndaryfirlýsingu taka þær gildi þegar uppfærð
útgáfa hefur verið birt.

Síðast uppfært í september 2022